::: Hver er ég

Ég er 24 ára strákur úr Reykjavík, var ađ klára annađ ár í Viđskiptafrćđi í HR... Vođalega venjulegur held ég :)
e-mail: asgrimur04@ru.is
... veit ekkert afhverju ég er ađ blogga

Auglýsing

Leit

Bled....

10. júlí 2006 klukkan 20:54

Bara ad lata vita af mer!
Alveg svakalega skemmtilegt herna, er ad laera svo svakalega mikid! Maeli med thessu vid ALLA!
Gedveikt flottur stadur....
Skemmtilegt folk....
Nog af skemmtun!

EN alveg svaaaakalega mikid ad gera!

Jaeja.. farinn ad laera!

Ásgrimur Tryggvason
4 athugasemdir

Easy Jet Virgin...

06. júlí 2006 klukkan 16:11
Tíminn sem ég var í Edinborg leið eins og ég veit ekki hvað! Varla kominn og þá er ég farinn aftur... En aðalmálið, tókst að klára ritgerðina :) Þvílík gleði og hamingja hefur ekki sést, var búinn að fresta henni svoldið mikið. En, þá er ég búinn með 9,5 einingar í sumar og er núna á flugvellinum í London á leiðinni til Slóveníu að krækja mér í 2,5 í viðbót! Allt að gerast.
Var alveg svakalega grátt í Edinborg þessa fáu daga sem ég var þarna, ekki það að ég sé ekki vanur því að þessi borg sé grá, en þá var þetta alveg nýtt stig! Og svo þoka í þokkabót, hún varð svo svakalega draugaleg, eins og það hafi ekki verið nóg þá komu þrumur og eldingar... En sem betur fer þá hafði ég þetta allt saman af enda mikil hetja.
Ég er búinn að sitja hérna á fluvellinum í nokkra tíma og tíminn bara liðið ótrúlega hratt, tókst meira að segja að sofna í stól í miðri flugstöðinni, held að það sé merki um að ég sé þreyttur! Hlusta á tónlist og horfa á fólk, rosalega mikið að skrítnu fólki hérna. Sparaði það að fara á netið þangað til síðar, en kom að óvart að ég þurfti að borga fyrir aðgang að þráðlausa netinu :( Núna þarf ég bara að bíða í 2 tíma enn og svo flýg ég á vit ævintýranna í Slóveníu, þegar ég kem þangað bíður mín maður með skilti með nafninu mínu á... verður voðalega spes....
Flugið frá Edinborg til London var með Easy Jet, fyrsta skipti sem ég flýg með þessu fræga flugfélagi, var alveg fínt. Nema eitt sem var að pirra mig, skiptir í raun ekki máli en.... Mér fannst flugþjónar og freyjur vera frekar í ljótari kanntinum :S Eru ekki einhverjar reglur um að það eigi að vera sæmilega myndarlegt fólk í þessum störfum??? Það er minnstakosti ástæðan fyrir því að ég fór ekki inn á þessa framabraut ( auk þess að ég kemst ekkert voðalega vel á milli sætanna, hi hi hi )

Jæja, batteríið að verða búið... upphafið að lokum á veru minni hérna hefst hér með!
Ásgrimur Tryggvason
1 athugasemd

aaaaaarrrg!

04. júlí 2006 klukkan 17:11
Faerslan min hvarf... fáid punkta!
 + Litil svefn i vikunni
 + Taiwan matur
 + Draugaleg thoka
 + Launavesen

Takk fyrir mig
( Thurfid thid nokkud meira en thetta?)

Ásgrimur Tryggvason
3 athugasemdir

Sumarönn lokiđ...

01. júlí 2006 klukkan 21:24
Mikið svakalega ógeðslega er ég glaður yfir því að sumarönnin er búin, þvílíkur léttir! Og ekki nóg með að ég sé búinn, þá er ég búinn að taka prófin og fá útúr þeim. Fékk 8 í Global Skills for the business manager og 8,5 í Fjármálum II. Alveg sáttur við þetta, sérstaklega fjármálinn, miðað við hversu svakalega góða mætingu ég var með í áfangan :) Núna sit ég í skólanum, kominn með nett leið á honum, og að klára ritgerðina fyrir Friðrik...
Á bara eina næturvakt eftir á Borgó, ekkert að gera þar, bara sit þar og glápi á tv og bíð eftir að vaktinn klárist! Svo bara Sunnudagur eftir, fer svo út á mánudagsmorgun :S Finnst ég ekkert vera að fara, og ég þarf að pakka svoldið vel því ég verð úti svo lengi. Einnig þarf ég að taka með drasl útaf Slóveníu!!!
Jæja, núna ætla ég að drullast til að klára þetta verkefni, ætlaði að kára það fyrir 24 maí! En, eins og mér einum er lagið er ég búinn að freasta því svoldið.....
Ásgrimur Tryggvason
3 athugasemdir

Herluf...

23. júní 2006 klukkan 13:38

Lítið búið að vera að gerast hjá mér (ekki að það sé eitthvað nýtt, mitt líf greinilega ekki það spennandi). Seinasti kennsludagur var í gær :) Vúhúúúúhú, sumarönn lokið, fyrir utan eitt smáatriði PRÓF! Eitt á þriðjudag og annað á miðvikudag.
Fór í gær í hádegismat með Lúllu og barni :) Fórum á grænan kost, svakalega gott, röltum svo um bæinn og vorum menningarleg. Ætluðum að kíkja á nýju fínu landnámssýninguna 897+-2, enda menningarleg með afbrigðum. EN smá vandamál, við vorum auðvitað með eitt stykki barnavang og heldum að það væru nú ekkert mál enda lyfta þarna. Allt voðalega fínt og flott... En lyftan var svo svakalega flott að það tók hana heila eilífð að koma upp... og svo seig hurðinn hægggggggt niður... svo fórum við inn og ýttum á takkann... Ekkert gerðis... biðum... biðum.... Ekkert gerðist!!! Gáfumst upp! Ég hleyp niður, það kostar inn, tímum ekki að borga 600 kall. Þannig að okkar upplifun af þessari sýningu var stórmerkileg lyfta! Svo þegar við vorum að fara að ganga út, þá byrjar lyftan að lokast...
Svo er annað mál sem er búið að vera að trufla mig mikið! Ég er búinn að vera svoldið mikið hérna í HR að læra. Ég er inná lesstofu á bókasafninu og bara með minn fallega bás þar :)... EN það er einn hérna sem er alltaf hérna á kvöldin, er þegar ég fer heim og svo þegar ég kem á morgnanna þá er slökkt og ég kveiki þá er ég alltaf að vekja hann :S Ég þori ekki að kíkja inn í horn þar sem hann er með bás, hvort hann sé bara fluttur inn! Hann er örugglega út Tölvunarfræðinni, mikið af skrítnum þar... ekki mitt að dæma! Svo lengi sem hann flytur ekki inn í básinn minn! Þá hendi ég honum út!
Jæja... núna þarf ég að fara að læra... mikið að gera um helgina og svo afmæli og útskrift líka!

Ásgrimur Tryggvason
3 athugasemdir

Bleikt....

20. júní 2006 klukkan 15:12
Ég verð að viðurkenna að ég var örugglega sá eini í gær sem var ekki í einhverju bleiku... Og það með vilja gert! Ég ætla ekkert að ræða hvað mér finnst mikið af því sem jafnréttissinnar eru að gera sem er rangt! Sem skemmir fyrir þeirra annars mjög svo góða málstað.
En annars... þá fór ég áðan á kaffitár og fékk mér ALVÖRU kaffi, mikið svakalega var það GOTT! Alveg 350 krónu virði :)
Ásgrimur Tryggvason
6 athugasemdir

Kaffi...

19. júní 2006 klukkan 15:30
Þá er komið að því... ég bjóst ekki við að þessi dagur myndi koma í bráð en þetta hefur verið að ágerast undanfarna daga, ég verð að viðurkenna þetta til að geta haldið áfram sáttur með lífið....
KAFFI, ég er farinn að drekka það eiginlega upp á hvern dag! Eins og það sé ekki nóg, þá erum við að tala um venjulegt heimavélakaffi, eins og það sé ekki nóg "slæmt" þá er það ÉG sem helli upp á það og ég kann það ekki einu sinni. Hertar aðhaldsaðgerðir hafa leitt til þess að ferðum á Kaffitár hefur fækkað en svakalega verður Davinci með karmellu góður þegar ég fer þangað næst :)
Núna líður mér betur eftir að hafa deilt þessu með fólki og óska eftir stuðningi í gegnum þetta erfiða ferli...
Annars ekkert, planið að læra eins og brjálæðingur (eða svona) gengur sæmilega, enginn vinna fyrr en eftir próf. En 27 júní verð ég ánægðasti maðurinn á stór höfuðborgarsvæðinu. Og svo þarf maður víst að hjálpa til við eitt stykki útskrift hérna á laugardaginn, heimasætan að kára BA-ið.
Ásgrimur Tryggvason
2 athugasemdir

Stórslys viđ morgunverđarborđiđ...

17. júní 2006 klukkan 03:50
Ég varð bara að deila lífsreynslu sem ég gekk í gegnum í morgun. Ég nývaknaður og með afbrigðum ferskur. Tek allt til fyrir fullkominn morgunverð, Cheerios, súrumjólk og Moggan... En allt fór ekki eins og ég var búinn að ákveða. Búinn að raða þessu upp í hinn formfasta þríhyrning sem hefur reynst mér vel í gegnum árinn. Cheeriosið komið í diskinn og er að teygja mig í mjólkina en þá..............
Tekst mér að rekast svona svakalega fast í Cheeriospakkan að hann fellur fast á hliðinna og hann auðvitað ennþá opinn..... og Cheerios hringir út um ALLT, borðið, stólar, gólf... Uppgjöfin var algjör, þessi morgunstund var ónýt, ég er ekki ennþá búinn að jafna mig...
Ásgrimur Tryggvason
6 athugasemdir

Ferđaáćtlun...

16. júní 2006 klukkan 02:40

Ég var að fjárfesta í morgun í síðasta flugmiðanum í bili þannig að ég ákvað að setja áætlunina fyrir sumarið hingað inn:
   Ísland-Skotland 3 júli
   Skotland-Slóvenía 6 júlí
   Slóvenía-Skotland 17 júlí
   Skotland-Ísland 18 ágúst
Þannig að núna eru bara nokkrir dagar þagnað til ég fer út og nóg að gera þangað til, 2 stykki lokapróf, heimaverkefni, heimavinna, klára ritgerð, útskrift, afmæli, vinna og fleira :) Þetta verður gaman...
Endilega látið mig vita ef ég er að gleyma einhverju!
Jæja farinn að sofa, ætla að vakna snemma og fara að læra ;)

Ásgrimur Tryggvason
1 athugasemd

Bara ađ láta vita af mér...

14. júní 2006 klukkan 07:25
Nóg búið að vera að gera hjá mér undanfarnar vikur, ég sem ætlaði að hafa þetta góðan júní mánuð og geta bara einbeitt mér af skólanum. En ég tók að mér nokkrar vaktir á Sambýlinu sem ég var að vinna á, nokkrar vaktir urðu svo að fleirum. Þarna kemur upp peningapúkinn í mér, ég á svo erfitt með að segja nei við vinnu, hreinlega tapa á því! Mér skilst að ég fái eitthvað borgað fyrir þetta, þannig að þetta er stórsniðug eyðsla á tíma.
Skólinn gengur vel, á reyndar svoldið eriftt með að koma mér almennilega inn í Fjármála áfangan þar sem ég mæti ekkert í hann, því það er skyldumæting í hinn áfangan. En fyrsta skilaverkefni lokið og næsta lægt fyrir á fimmtudaginn þannig að það er enginn pása! Þannig að næstu 2 vikur verða alveg á fullu og svo er bara lokapróf 27 júní og þá er þessari sumarönn lokið. Ég á reyndar eftir að leggja lokahönd á verkefni sem ég er að gera hjá einum kennara, verð að finna mér tíma í það :S
Mínir miklu skipulagshæfileikar hafa leitt mig í þá stöðu að ég er á Íslandi yfir 5 helgar, 4 af þeim þá er ég að vinna eitthvað! Og þessi "fríhelgi" sem ég á, er helginn áður en lokaprófinn eru. Eins og það sé ekki nóg þá er litla systir mín að fara að útksrifast á laugardeginum og það merkir það að ég verð að fá mér einn eða 2 bjóra... kannski aðeins meira ;)
Ég fór út með Sunnu minni áðan og fékk mér einn latte... og hann fór bara beint upp í hausinn á mér, get ekki sofnað. En búinn að nýta tímann vel og skoða flugmiða og allskonar dót fyrir sumarið, meira að segja pantaði miða til Slóveníu gott að eitthvað sé frá. Ég fæ að kynnast þjónustu hins stórkostlega flugfélags Wizz air, ég tel að það sé eingögnu gæðastimpill að það sé frá Póllandi :S Og svo fæ ég loksins að prufa að fluga með Easy Jet, örugglega eini Íslendingurinn sem ekki hefur prufað það. Skelli inn ferðadagsetningum þegar ég er búinn að kaupa alla miða og allt komið á hreint.
Ef einhver veit um eitthvað í Slóveniu sem nauðsynlegt er að skoða á svæðinu í kring um Bled, endilega láta mig vita :)
Ég var að fatta alveg stórmerkilegan hlut! Öll þau lönd sem ég mun ferðst til í ár byrja á S.... Tilviljun, það held ég ekki! Skotland, Spánn og Slóvenía. Þannig að ef ég ætla að bæta við fleiri löndum í ár þá þarf ég að virða þessa reglu...  hummmm S-Afríka!
Jæja... farinn að sofa, verð víst að vakna á morgun!
Ásgrimur Tryggvason
8 athugasemdir